Stoltur villiköttur: Jón Bjarnason bendir á að fylgi Regnbogans komi upp úr kjörkössunum

Jón Bjarnason tók þátt í umræðum nýju framboðanna í dag og þeir sem misstu af þeim þætti munu eflaust finna hann á vef Ríkisútvarpsins, ruv.is

Það barst í tal að hann væri einn af villiköttum síðasta kjörtímabil og athyglisvert var að hann setti það í samhengi við að vera trúr sannfæringu sinni og málefnunum sem hann stendur fyrir. Það er einmitt styrkleikur Regnbogaframboðsins - það er ekki aðeins samþykkt að fólk standi með sínum málefnum, heldur byggist framboðið á því. Stefnuyfirlýsing Regnbogans fjallar um þau mál sem frambjóðendurnir sameinast um, en það er gengið út frá því að hver frambjóðandi hafi eitthvað sérstakt fram að færa og berjist fyrir þeim málefnum. Flestir þekkja þá liðsmenn Regnbogans sem hafa verið á þingi og einmitt barist fyrir sínum málefnum þar og neitað að taka þátt í hrossakaupum og svikum við einlæg loforð bæði í ESB-andstöðu ogumhverfismálum. Nú seinast tóku þeir Jón Bjarnason og Atli Gíslason þann slag eftirminnilega. Harpa Njálsdóttir, sem aldrei hefur fyrr ljáð máls á því að fara í framboð hefur þegar komið fram með sína sérþekkingu á velferðarmálefnum og fátækt á Íslandi í umræðuþætti á Stöð 2, þar sem hún var fulltrúi Regnbogans. Í kosningabaráttunni hafa fleiri frambjóðendur komið skýrt fram með sínar áherslur í blaðagreinum, bloggi og á fundum. 

Það er sagt að Svisslendingar, sem eiga allra þjóða besta hefð í að nýta sér þjóðaratkvæðagreiðslur, telji litla þörf á að segja hug sinn í skoðanakönnunum. Til þess hafa þeir raunverulegar kosningar, og það var einmitt það sem Jón benti á í þættinum áðan, að fylgi Regnbogans mun koma í ljós í kosningunum, stuðningur við frambjóðendurna kemur upp úr kjörkössunum. Aldrei fyrr, alla vega á lýðveldistímanum, hefur verið eins mikil gerjun í íslenskum stjórnmálum. Margir ætla að kjósa ,,hvað sem er nema fjórflokkinn" og munu hlusta á málflutning frambjóðenda Regnbogans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband